103659455.jpg

 

Henrique Hilario 

Númer:
 40 
Þjóðerni: Portúgal 
Staða: Markvörður 
Hæð: 188 sm. 
Fæðingardagur: 21. október 1975 
Keyptur: Frá Nacional sumarið 2007.
Landsleikir: 0

Þegar Hilario kom til Chelsea í fyrrasumar til að verma bekkinn hafði hann sennilega enga hugmynd um það að í sama leiknum myndu báðir markverðirnir sem á undan honum voru, lenda í langtímameiðslum. Það gerðist samt sem áður og honum var ýtt fram í sviðsljósið og fékk hann að standa milli stanganna í 18 leikjum áður en hinir urðu heilir. Hann stóð sig með heilmiklum ágætum í deild, bikar og Meistaradeild.

Hilario var hjá Porto þegar Mourinho var við stjórnvölin og þegar hann kom til Chelsea á tveggja ára samningi í fyrra, sagðist hann ætla að gera Mourinho lífið erfitt með því að standa sig vel á æfingum og gera allt sem hann gæti til að láta Cech og Cudicini missa sæti sín.

Það er alveg ljóst að Chelsea eru ekki á flæðaskeri staddir með markverði þegar maður eins og Hilario er þriðji valkostur. Hann fær sennilega ekki 18 tækifæri í aðalliðinu í vetur en ef á honum þarf að halda er engin ástæða til að örvænta. 

Ferill hjá Chelsea                            Leikir                Sem varamaður               Mörk

2006-2007                                           18                              0                                       0