John Obi Mikel John-Obi-Mikel.jpg
Númer:
 12 
Þjóðerni: Nígería 
Staða: Miðjumaður 
Hæð: 189 sm. 
Fæðingardagur: 22. apríl 1987 
Keyptur:  Frá Lyn/Man. Utd. sumarið 2006 fyrir 16 milljónir punda 
Landsleikir: 12 (2)  2 mark (til 10 ágúst 2008).

Sagan um John Obi Mikel er vægast sagt dularfull. Vorið 2005 skrifaði hann undir það sem flestir myndu kalla draumasamning við Manchester United, þá leikmaður hjá Lyn í Noregi. Hann var nýorðinn 18 ára og framtíðin blasti við honum en síðar þetta sama sumar kom hann fram og sagði að hann hafi verið þvingaður til að skrifa undir hjá United og hann vildi fyrir alla muni fara til Chelsea. 

Það eru fjölmargar sögur til af leikmönnum sem koma ungir að árum til Evrópu frá Nígeríu og eru í eins konar þrælahaldi hjá umboðsmönnum sem borguðu farseðilinn til að komast til fyrirheitna landsins en ekkert slíkt hefur komið fram í þessu máli. Að sama skapi hefur Chelsea haft hægt um sig á þeim tíma sem leikmaðurinn hefur neitað að fara til United og neitað að spila fyrir Lyn. Fjölmiðlar hafa reynt að ásaka Chelsea um að hafa ruglað leikmanninn í ríminu en það verður að teljast harla ólíklegt þar sem félagið er með fleiri gæða miðjumenn en flest önnur lið í heiminum og þarf ekki á fleiri hneykslismálum að halda. Það kom svo í ljós á síðasta tímabili að aðalsökudólgurinn var stjórnarformaður Lyn og Chelsea hafi ekki verið saknæmt í einu né neinu. Það er jafnvel möguleiki á því að félagið gæti átt rétt á einhverjum peninga sinna til baka frá Manchester United þar sem samningur leikmannsins við það félag var ógildur.  

Hann spilaði þó fyrir Nígeríu á Afríkumótinu í janúar 2006 og þrátt fyrir að vera “án félags” þótti hann sóma sér vel þar á meðal eldri stjarna á vellinum.

Á sínu fyrsta tímabili hjá Chelsea byrjaði Mikel rólega enda með marga reyndari leikmenn á undan sér í goggunarröðinni. En í desember virðist sem hann hafi fangað hjarta Mourinho því hann tók stöðu Makelele á vellinum og var í byrjunarliðinu í nánast hverjum einasta leik fram á sumar. Hann er ekki beinlínis Zidane en hann heldur boltanum vel og enginn nær að stressa hann þar til hann skilar honum af sér örugglega. Hann er líkamlega sterkur og ennþá mjög ungur svo að framtíðin er björt hjá honum. Það skyldi þó aldrei vera að 16 milljónir punda hafi verið kostakaup. 

Í fyrra spilaði hann svo 39 leiki og kom sterkur inn aftur þó að hann hafi kannski ekki alveg eignað sér eina stöðu á vellinum frekar en aðrir leikmenn en það er ljóst að Mikel er einn þessara leikmanna sem við eigum alltaf í bakhöndinni og hann á bjarta framtíð.

 

Ferill hjá Chelsea:                  Leikir                Sem varamaður                     Mörk 

2006-2007                                 91                                29                                         2