John Terry 
Númer: 26
Þjóðerni: England
Staða: Miðvörður
Hæð: 185 sm.
Fæðingardagur: 7. desember 1980
Keyptur: Kom upp unglingastarfið
Landsleikir: 39 (0) og 3 mörk fyrir A-liðið og 9 fyrir U-21 (til 16. júlí 2007).
Þvílíkur leiðtogi, þvílíkur leikmaður!!! John Terry er, eins og allir vita, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins. Þessi drengur hefur allt sem til þarf til að slá í gegn og það hefur hann svo sannarlega gert. Og ekki skemmir að hann er uppalinn Chelsea-maður.
Hann hóf að spila með Chelsea árið 1998 undir stjórn Viallis en var ekki orðinn reglulegur byrjunarliðsmaður fyrr en Ranieri ákvað að þrauka með hann. Nóg gekk á utan vallar því stráksi þurfti að ganga í gegnum erfið réttarhöld þar sem hann og Jody Morris voru, ásamt leikmanni Wimbledon, ásakaðir um að hafa ráðist að dyraverði á næturklúbbi. Terry var ungur að árum kominn með orðspor sem vandræðagemsi og það var fyrir ekki nema 5 árum.
Þetta virðist órafjarlægð í burtu því Terry eins og við þekkjum hann í dag er einn dýrmætasti leikmaður enskrar knattspyrnu og drifmótorinn í meistaraliði Chelsea. Hann leiðir með fordæmi sem er alger andhverfa orðsporsins sem hann hafði á sér fyrir nokkrum árum. John Terry er fyrirmyndarleikmaður og vel að titlinum Leikmaður ársins 2005 kominn.
Í fyrra átti hann við erfið meiðsli að stríða og það sást greinilega á leik Chelsea hversu mikilvægur hann er liðinu. Án hans lak Chelsea mörkum og vantaði áþreifanlega leiðtoga. Þrátt fyrir meiðslin náði hann að spila 45 leiki á síðasta tímabili. Það má leiða líkum að því að ef hann hefði spilað yfir 60 leiki eins og Lampard gerði, væri Chelsea sennilega enn Englandsmeistari.
Ferill hjá Chelsea Leikir Sem varamaður Mörk
1998-2007 317 19 31
