José Bosingwa da Silva 
Númer: 17
Þjóðerni: Portúgal
Staða: Hægri bakvörður
Hæð: 183 sm
Fæðingardagur: 24. ágúst 1982
Keyptur: Frá Porto fyrir 16,3 milljónir punda sumarið 2008
Landsleikir: 14 (til 12. sept. 2008)
Heldur fjölgaði Portúgölunum hjá Chelsea í sumar við komu Decos og hægri bakvarðarins José Bosingwa eða Boss eins og sumir spjallverjar á enskum orðhákasíðum kalla hann.
Bosingwa fæddist portúgölskum föður og kongóskri móður í Kinshasa í Lýðveldinu Kongó þar sem miðvallarkletturinn og fyrrverandi Chelsea-kappinn Claude Makelele var einnig í heiminn borinn 9½ ári fyrr.
Bosingwa fluttist ungur til Portúgals og gekk til liðs við Boavista þegar aldur leyfði. Þar gat hann sér nægilega gott orð til þess að ungur knattspyrnustjóri á uppleið, nafni hans Mourinho, keypti hann til Porto 2003. Með Porto varð hann svo Portúgals- og Evrópumeistari vorið 2004 þótt hann léki ekki nema 11 deildarleiki og 8 meistaradeildarleiki þá leiktíð – Paulo Ferreira var fyrsti kostur í hægri bakvarðarstöðuna.
Heldur vænkaðist hagur Bosingwa hins unga þegar Mourinho og Ferreira brugðu sér til Englands ásamt Ricardo Carvalho til að gera Chelsea að meisturum. Hann var sjálfkjörinn í byrjunarliðið og skemmst er frá því að segja að hann vann fjóra meistaratitla með Porto á fimm leiktíðum.
Frammistaða Bosingwa – traustur varnarleikur og sókndirfska í bland – fór ekki framhjá landsliðsþjálfara Portúgals, Luis Felipe Scolari, sem valdi hann í fyrsta sinn í landsliðið 2007 og brátt var kappinn búinn að ýta Miguel, leikmanni Valencia á Spáni, út úr byrjunarliðinu.
Það er ekkert leyndarmál að Chelsea hefur verið að leita að arftaka Ferreira í ein tvö ár. Mikið var reynt til að ná í Brasilíumanninn Daniel Alves frá Sevilla á Spáni en hann var svo dýr að Roman tímdi ekki að kaupa hann svo að landi Alves, hinn þá 31 árs gamli Juliano Belletti, var keyptur til bráðabirgða fyrir slikk. Bosingwa var svo keyptur um síðir, yngri og traustari varnarmaður en Belletti. Alves er hins vegar farinn til Katalóníu að spila með Barcelona fyrir 23 milljónir punda (gæti orðið 28 milljónir).
Ekki hefur líf José Bosingwa verið alveg áfallalaust. Í maí 2005 velti hann jeppa sínum með fjóra aðra fótboltamenn innanborðs. Þeir sluppu allir lifandi en einn þeirra missti annan fótinn. Porto setti Bosingwa í bann vegna slyssins.
En nú er kappinn kominn til Chelsea ásamt fyrrverandi félaga sínum hjá Porto, Deco, og Felipao fyrrverandi landsliðsþjálfara, búinn að leika þrjá leiki þegar þetta er skrifað og hefur sýnt hvers má vænta af honum, ekki síst í fyrsta leik leiktíðarinnar, gegn Portsmouth á Stamford Bridge þar sem hann stormaði fram hægri kantinn við hvert tækifæri til að hrella Hermann Hreiðarsson.
Svo er bara að vona að kongóski Portúgalinn Bosingwa verði Chelsea jafn magnaður liðsmaður og kongóski Fransmaðurinn Makelele.
Ferill hjá Chelsea Leikir Sem varamaður Mörk
2008 3 0 0
