Jeffrey Bruma

 

103659737.jpg

Númer: 43 
Þjóðerni: Holland
Staða: Varnarmaður
Hæð: 186 sm.
Fæðingardagur: 13. nóvember 1991 
Keyptur: Frá Feyenoord sumarið 2007
Landsleikir: 1 leikur (til 20.11’10)

Það er góð og gild ástæða fyrir því að Chelsea gerðu fjögurra ára samning við þennan efnilega varnarmann sumarið 2000.  Jú, þetta er virkileg framtíðarstjarna. 

Jeffrey Bruma er af hollensku bergi brotinn og spilaði með hollenska stórliðinu Feyenoord á sínum yngri árum.  Fljótt kom í ljós að hér á ferð væri afar efnilegur leikmaður og nýttu Chelsea sér tækifærið og festu kaup á honum, en þá var hann aðeins 15 ára gamall.  Fyrstu tvö árin hans hjá okkur spilaði hann mestmegnis með U-18 ára liðinu og naut sín vel.  Árið 2009 gerðist hann svo atvinnumaður og komst í fáein skipti í leikmannahóp aðalliðsins. 

Hans fyrsti aðalliðsleikur var heimaleikur gegn Blackburn haustið 2009, en þá

 fékk Bruma að spreyta sig í hjarta varnarinnar seinasta hálftímann.  Síðan þá hefur hann ekki fengið ýkja mörg tækifæri en það er aldrei að vita hvað gerist á tímabilinu 2010-11.

Bruma getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður.  Hann spilar þó oftast sem miðvörður með varaliðinu og tel ég líklegt að hann eigi eftir að festa sig betur í sessi þar, þegar fram líða stundir.  Hann er afar traustur og sterkur leikmaður og gerir sjaldan mistök, en auk þess hefur hann mikinn hraða, sem gerir honum kleift að kljást við sprettharða framherja.

 

Jeffrey Bruma á Youtube (http://www.youtube.com/watch?v=cfiTDfpR6nY)

 

Ferill Bruma hjá Chelsea                          Leikir             Sem varamaður                            Mörk

2009-2010                                                    5                               4                                         0