Paulo Ferreira 
Númer: 20
Þjóðerni: Portúgal
Staða: Hægri bakvörður
Hæð: 180 sm.
Fæðingardagur: 18. janúar 1979
Keyptur: Frá Porto fyrir 13.2 milljónir punda sumarið 2004
Landsleikir: 36 (5) (til 14. júlí 2007).
Paulo Ferreira kom, eins og Carvalho, með Mourinho frá Porto sumarið 2004. Hann hafði unnið UEFA bikarinn og Meistaradeildina með Stjóranum og José treysti honum nóg til þess að henda 13 milljónum punda til Portúgal fyrir hann. Ferreira tók byrjunarliðssætið strax af Glen Johnson og sýndi fljótt hvers vegna Stjóranum líkar svona vel við hann.
Paulo er sókndjarfur en jafnframt agaður bakvörður. Hann sækir aldrei um efni fram en þegar hann gerir það má yfirleitt búast við hættulegum fyrirgjöfum og öðru slíku.
Á síðasta tímabili var Ferreira svolítið í kuldanum en náði samt sem áður 38 leikjum hjá Chelsea. Hann missti sæti sitt til Lassana Diarra á seinni hluta leiktímabilsins án sérstakra skýringa. Hann er nokkuð áreiðanlegur bakvörður en vantar kannski aðeins upp á hraðann. En án annarra kosta í liðinu erum við ekki á flæðaskeri staddir með Ferreira.
Ferill hjá Chelsea Leikir Sem varamaður Mörk
2004-2007 112 15 1
