Petr Cech
Númer: 1
Þjóðerni: Tékkland
Staða: Markvörður
Hæð: 197 sm.
Fæðingardagur: 20. Maí 1982
Keyptur: Frá Rennes 1. júlí 2004 fyrir 7 milljónir punda.
Landsleikir: 85 (til 17. desember 2009)
Petr Cech kom til Chelsea sumarið 2004 og hefur vægast sagt slegið í gegn. Hann byrjaði á því að slá Carlo Cudicini út úr liðinu og var það ekkert grín því Cudi var allra besti markvörður Englands tímabilið áður. Hann lét það ekki nægja heldur sló hann met Peter Schmeichels yfir lengsta tímann án þess að fá á sig mark. Þessu náði hann með því að verja, m.a., víti gegn Blackburn. 1024 mínútur án þess að fá á sig mark var met í efstu deild á Englandi þar til það var slegið af Edwin van der Sar í mars 2009 eða 1311 mínútur sem er jafnframt núverandi heimsmet. Cech er enn ungur, fæddur 1982 þannig að hann ætti að eiga þó nokkur tímabil eftir á milli stanganna.
Þess má geta að Cech kostaði meira en samanlagt allir markverðir í sögu Chelsea fram að þessu. Cech vann auðvitað gullhanskann á sínu fyrsta leiktímabili og hefur síðan verið að fá verðlaun úr öllum áttum sem besti markvörður Meistaradeildarinnar, heims og svo framvegis.
Cech þurfti að gangast undir aðgerð á öxl sumarið 2006 og hóf Carlo Cudicini því leiktímabilið sem aðalmarkvörður Chelsea en um leið og Cech varð heill heilsu spilaði hann sig aftur í byrjunarliðið og var sem klettur í sterkri vörn Englandsmeistaranna.
Ekkert virtist bíta á vörnina með þennan snilling fyrir aftan hana. Svo dundi ógæfan yfir.
Hann varð, eins og allt Chelsea liðið, fyrir miklu áfalli í leik gegn Reading þann 14. október 2006. Eftir samstuð við Stephen Hunt, vinstri vængmann Reading, var hann borinn út af vegna höfuðmeiðsla. Ljóst var að þessi meiðsl voru alvarleg og að um höfuðkúpubrot var að ræða. Græddar voru í kúpuna stálplötur tvær og ljóst er að hann verður vinsælastur í málmleitartækjunum vestanhafs.
Hann var svo frá í um það bil þrjá mánuði og vegna meiðsla Cudicini tók Henrique Hilario stöðu Cech í liðinu á meðan.
Langþráð endurkoma hans varð síðan að veruleika, eftir ótrúlega skjótan bata, í annars miður eftirminnilegum leik gegn Liverpool þann 20. janúar 2007. Leikurinn tapaðist en Cech verður vart kennt um mörkin. Það telst þó afrek að eftir þann leik hélt Cech hreinu í 810 mínútur í Úrvalsdeildinni og var svo valinn leikmaður mánaðarins í apríl 2007 í fyrsta skipti á ferlinum en markvörður hafði ekki hlotið þessi verðlaun síðan 2000. Hann leikur nú með sérhannaðan hjálm og væntanlega verður sá háttur hafður á í einhvern tíma.
Tímabilið 2007-2008 endaði Cech án titils eins og allt lið Chelsea og margir spáðu í það hvort hjálmurinn háði honum eitthvað í markvörslunni. Hann átti í meiðslum hér og þar en endaði í 40 leikjum fyrir félagið. Hvað sem því leið þá var hann besti markvörður Úrvalsdeildarinnar þó að mistökin hafi farið úr 0 í kannski 3.
Hann endaði "tímabilið" þó verulega illa með því að kosta landslið sitt sæti í 8-liða úrslitum EM þegar hann missti einfalda fyrirgjöf í stöðunni 2-1 gegn Tyrkjum er 3 mínútur voru eftir af leiknum, Tyrkir skoruðu og settu svo annað til og slógu Tékka og Cech út úr keppninni á ótrúlegan hátt. Cech hafði á orði eftir leikinn að þetta hafi verið í takt við tímabilið hjá sér og hann ætli að koma tvíefldur til leiks í ágúst. Sjálfsagt þá gott mál fyrir Chelseamenn að hann sendi lið sitt í snemmbúið sumarfrí.
Ferill hjá Chelsea: Leikir Sem varamaður Mörk
2004-2008 243 0 0
