Númer: 7Ramires.jpg
Þjóðerni: Brasilía
Staða: Miðjumaður 
Hæð: 180 sm. 
Fæðingardagur:
 24. mars 1987 
Keyptur:
 Keyptur frá Benfica og þriðja aðila á 17m pund
Landsleikir: 8 fyrir U-23 og 17 fyrir aðallið Brasilíu

 

Ramires fæddist í Rio de Janeiro og hóf feril sinn hjá Joinville. Joinville er þekkt fyrir það eitt að Ramires er þaðan. Hann spilaði eitt tímabil með aðalliði Joinville, 2006-2007, og skoraði hann 3 mörk í 14 leikjum. 

Næsta tímabil fór hann að láni til Cruzerio og það tímabiil spilaði hann 32 leiki og skoraði 3 mörk. Cruzerio ákváðu að kaupa hann af Joinville á 300.000 pund. Cruzerio eignuðust 70% í leikmanninum, Joinville hélt 30% þar sem fjölmiðlar voru búnir að tala um hann sem framtíðarstjörnu. 

Hjá Cruzerio var hann kallaður "Queniano Azul" eða "Blái Kenyamaðurinn"  Þar sem hann mætti í bláa búningi Cruzerio og hafði ótrúlegt úthald. 
 

Árið 2009 keypti Benfica leikmanninn á 7,5milljónir evrur og gerði við hann 5 ára samning. Sama dag og sá samningur var gerður var hann valinn í leikmannahóp Brasilíu fyrir heimsmeistarakeppnina.

 

 

 

Það var svo eftir framistöðu hans á HM í Afríku að lið í Evrópu voru farin að fá mikinn áhuga á pilti. Á endanum var það Chelsea sem keypti leikmanninn á 17 milljónir punda. Leikmaðurinn fékk treyju númer 7 en síðast var það Andriy Shevchenko sem bar það númer.

Ramires kom inn á í sínum fyrsta leik með Chelsea 28.ágúst gegn Stoke. Hann var í byrjunarliðinu sem mæti West ham 11.sept.

Vonandi mun "Queniano Azul" reynast Chelsea vel enda kominn í bláan galla aftur.

Ramirez á YouTube

 

 

 

 

 

 

 

 

Ferill hjá Chelsea:                     Leikir               Sem  varamaður                          

 2010-                                                 2                            1