Salomon Kalou 
Númer: 21
Þjóðerni: Fílabeinsströndin/Holland
Staða: Sóknarmaður/Kantmaður
Hæð: 184 sm.
Fæðingardagur: 5. ágúst 1985
Keyptur: Frá Feyenoord, verð óuppgefið (talið í kringum 4 milljónir punda), sumarið 2006
Landsleikir: 0. Hefur ferðast með landsliði Fílabeinsstrandarinnar.
Salomon Kalou kom til Chelsea nokkuð undir ratsjánni þar sem Shevchenko og Ballack voru á leið til Chelsea á sama tíma. Hann er samt sem áður mjög efnilegur leikmaður sem skoraði 15 mörk undir stjórn Ruuds Gullit hjá Feyenoord á sínu síðasta leiktímabili fyrir kaupin hjá Chelsea sem margir telja hafa verið upp á um 4 milljónir punda.
Hann er sóknarmaður en mun taka að sér hvaða stöðu sem er, til að hasla sér völl í liði José Mourinho. Hann var keyptur í stað Carltons Cole sem fór til West Ham sumarið 2006. Á sínu fyrsta tímabili hjá Chelsea spilaði Kalou heilmikið. Heila 58 leiki. Af þessum leikjum kom hann 33 sinnum af bekknum en það er varla hægt að fara fram á meira í liði með Shevchenko og Drogba innanborðs.
Kalou er mjög leikinn með boltann og náði sér í 9 mörk á sínu fyrsta tímabili með Chelsea. Honum misfórst nokkrum sinnum úr auðveldum færum en með smá nákvæmnisþjálfun ætti það að lagast. Hann virðist bara þurfa á smá trausti að halda hjá Mourinho til að byrja að skora að vild. Salomon Kalou er einn af þeim leikmönnum Chelsea, ásamt þeim Lassana Diarra og Obi Mikel, sem ættu að geta haldið áfram að vaxa í vetur og styrkja hópinn heilmikið. Framtíðin er björt hjá Kalou og hann er sannarlega sterkari leikmaður en Carlton Cole sýndi nokkru sinni í aðalliði Chelsea.
Ferill hjá Chelsea Leikir Sem varamaður Mörk
2006-2007 58 33 9
