Yossi BenayounYossi-Benayoun.jpg

Númer: 10

Þjóðerni: Ísrael

Staða: Miðjumaður

Hæð: 178 sm.

Fæðingardagur: 5. maí 1980

Keyptur: Frá Liverpool fyrir 5,5 milljónir punda sumarið 2010

Landsleikir: 80 leikir og 23 mörk (til 19.11’10)

 

Koma Benayouns til Chelsea vakti töluverða lukku á meðal áhangenda Chelsea, enda frábær leikmaður hér á ferð.  Auk þess að styrkja liðið inn á vellinum hefur fylgt Benayoun mikill gróði, þar eð hann er þjóðhetja í heimalandi sínu og tók aðdáendafjöldi Chelsea þar í landi miklum stakkaskiptum seinasta sumar.

Yossi Benayoun kom sér í sífellu á forsíðu dagblaða og tímarita strax á sínum yngri árum; sjaldan höfðu Ísraelar séð annan eins knattspyrnusnilling.  Fréttir af honum bárust víða að og fór það svo að Ajax fékk hann til liðs við sig er hann var einungis 15 ára gamall.  Ajax er þekkt fyrir frábært unglingastarf og hafa framleitt marga efnilega leikmenn, en það var Benayoun sem skaraði fram úr.  Fyrsta árið sitt var hann bæði markahæsti og besti leikmaður síns liðs og buðu Ajax honum fjögurra ára atvinnumannasamning.  Benayoun og fjölskylda hans höfðu ekki náð að aðlagast lífinu í Hollandi vel, enda heldur frábrugðið því sem þau voru vön, og var það sameiginleg ákvörðun að á heimleið skyldi halda. 

Hapoel Be'er Sheva var liðið sem varð fyrir valinu, en þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gamall var Benayoun lykilmaður liðsins og skoraði hvorki meira né minna en 15 mörk í 25 leikjum, og það í ísraelsku úrvalsdeildinni!  Næst lá leiðin síðan til eins frægasta liðs í Ísrael, Maccabi Haifa.  Þar var Benayoun við góðan í orðstír í nær fjögur ár, og er óhætt að segja að hann hafi fest sig í sessi sem ein af goðsögnum liðsins.  Tveir meistaratitlar, þar á meðal undir stjórn Avram Grants, leikmaður ársins eitt tímabilið, og einn af markahæstu leikmönnum deildarinnar öll fjögur árin.  Já, þannig hljómaði magnaður ferill Benayouns hjá Maccabi Haifa og lá næst leiðin til Spánar, nánar tiltekið til Racing Santander.

Benayoun var 22 ára gamall er hann gekk til liðs við Racing Santander, en þau félagsskipti komu ansi á óvart í ljósi þess að mörg önnur „stærri“ lið höfðu veitt honum áhuga.  Á Spáni var hann í þrjú tímabil og kunni ágætlega við sig þó svo að hann hafi aldrei slegið rækilega í gegn.  Lið hvaðanæva að ágirntust hann og fór það að lokum að hann gekk til liðs við West Ham, en á sínum yngri árum var einmitt hans helsti draumur að fá að spila á Englandi.

Benayoun reyndist vera algjör himnasending fyrir Alan Pardew og lærisveina hans í West Ham.  Fræðgarspor hans jókst allverulega og var hann af mörgum talinn einn besti útlendi miðjumaður deildarinnar, stór orð en slík var frammistaðan.  Það sem helst breyttist við leik Benayouns á Englandi var að þar lagði hann meira upp fyrir félaga sína, en í Ísrael og á Spáni hafði hann verið aðalmarkaskorarinn.  Sumarið 2007 einkenndist mestmegnis af vandræðaháttum og „veseni“ í félagsskiptamálum Benayouns en svo fór að hann gekk til liðs við Rauða herinn, Liverpool.

Á þremur árum hjá Liverpool spilaði hann alls 92 leiki og skoraði 18 mörk.  Hann var byrjunarliðsmaður öll sín ár en tók Rafael Benítez, þáverandi þjálfari Liverpool, oft til þess ráðs, þá sérstaklega gegn stóru liðunum, að setja Benayoun inn á um miðjan síðari hálfleik til þess að hrista aðeins upp í hlutunum, og það með góðum árangri.  Benayoun var oft okkur Chelsea mönnum erfiður ljár í þúfu , en þrátt fyrir að að hafa ekki náð að skora gegn okkur lagði hann upp fáein mörk og sýndi snillli sína.  Það var líka vel við hæfi að lokaleikur hans með Liverpool var gegn Chelsea, í maímánuði árið 2010, en sá leikur endaði með 2-0 sigri þeirra bláklæddu.

Það er þó ekki hægt að segja að dvöl hans hjá okkur hafi byrjað heillvænlega.  Í sínum sjötta leik fyrir félagið, þann 22. september síðastliðinn í leik gegn Newcastle í Carling Cup, meiddist hann alvarlega á ökkla og er talið að hann verði frá í um það bil sex mánuði og spilar hann því lítið sem ekkert á tímabilinu 2010-11.  Sannarleg vonbrigði.

Auk þess að hafa að baki magnaðan feril með félagsliðum er hann einnig fyrirliði ísraelska landsliðið og hefur spilað nákvæmlega 80 landsleiki.  Hann er því algjör þjóðhetja í heimalandi sínu og er oftan kallaður þar „demanturinn frá Dimona“. 

Benayoun getur bæði spilað á köntunum sem og á miðri miðju en honum líður best í sem frjálsustu stöðu framarlega á miðjunni, beint fyrir aftan framherjann.  Hann hefur afar góðan leiksskilning og gott auga fyrir spili en besta lýsingin, að mínu áliti, af honum eru orð Alan Pardews: „He opens the door when teams sit deep“.

Benayoun á Youtube   (http://www.youtube.com/watch?v=4SOuo5wys7A)

Ferill hjá Chelsea                            Leikir                Sem varamaður               Mörk

2010-2011                                           6                              4                                       1