| Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
| Höfundur |
Skilaboð |
keg
Skráður þann: 14 Sep 2005 Innlegg: 541 Staðsetning: Reykjavík
|
Innlegg: Mán Mar 01, 2010 20:34 Efni innleggs: Lýst eftir týndum búningsklefa … |
|
|
Djö … er ég hræddur um að eitthvað geti verið til í þessu. Ef svo er þá getum við kvatt alla bikara þetta árið. Óbugandi liðsandi er það sem hefur einkennt Chelsea-liðið undanfarin 5-6 ár og ef hann er rokinn út í veður og vind er voðinn vís. En svo er auðvitað alltaf hugsanlegt að Marcel sé að tala út um púströrið … _________________ Framtíðin er björt! Framtíðin er blá! |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
Ballack00
Skráður þann: 30 Júl 2008 Innlegg: 137
|
Innlegg: Mán Mar 01, 2010 21:16 Efni innleggs: |
|
|
| Hvað.. 3 töp í síðustu 4 leikjum og það er vel hægt að rekja þetta til þessa mála um Terry og A Cole, þó sérstaklega Terry. Vonandi að við náum að klára þessa leiki sem eftir eru vel, eigum mjög góðan möguleika á að vinna deildina þetta ár, vil ekki sjá Man utd taka þetta á lokasprettinum vegna einhverra mála utan vallar. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
bubbi
Skráður þann: 09 Sep 2005 Innlegg: 184 Staðsetning: "Þar sem lognið hlær svo dátt"
|
Innlegg: Mán Mar 01, 2010 23:03 Efni innleggs: |
|
|
I don’t think it is coincidental that Terry’s form has dropped since the revelations about him and Wayne Bridge’s former girlfriend. You need to be in a good place off the pitch to be in a good place on it. People can say playing football can be an escape but the game is difficult and complicated at the very top level — even when things are fine.
So if you have distractions in your life, it will have an impact — I don’t care who you are.
Terry may look strong and commanding but he is still a human being and he will have all sorts of emotions going through his head: contrition, regret, whatever.
Read more: http://www.dailymail.co.uk/sport/football/article-1254289/Gary-Lineker-John-Terry-look-strong-human.html#ixzz0guuR26rb
Þetta er það sem að Gary Lineker hefur m.a að segja um JT.
Miðað við þetta og hvað Marcel D og fl. segja þá er ennþá skrýtnara að Ancelotti segi "Mér er alveg sama hvað leikmenn gera utan vallar, ef það kemur ekki niður á leik þeirra" What a load of rubbish ! _________________ Chelsea, annað kemur ekki til greina. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
Cardinal
Skráður þann: 09 Mar 2006 Innlegg: 366 Staðsetning: Stamford Bridge
|
Innlegg: Þri Mar 02, 2010 7:27 Efni innleggs: |
|
|
Þú værir ekki að ræða þetta ef Terry hefði ekki látið þetta hafa áhrif. En hlutverk Ancelotti er að setja Terry úr hópnum þar til hann verðskuldar pláss í liðinu. Inn með Alex og út með Terry.
En við skulum alveg vera rólegir. Það er enginn sjéns að Ancelotti hafi ekki sest niður með mönnum og rætt þessi mál eftir leikinn á laugardag. Hvað myndum við gera ef yfirmaður okkar í vinnunni myndi fara að skipta sér af einkalífi manns? Ancelotti er í erfiðri stöðu, ekki spurning.
En svarið fáum við í erfiðum leik gegn Stoke um helgina og eitthvað segir mér að við rústum þeim leik. _________________ Guð hjálpi okkur öllum. Það eru hálfvitar við stjórnvölin! |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
PBP
Skráður þann: 08 Sep 2005 Innlegg: 256
|
Innlegg: Þri Mar 02, 2010 13:13 Efni innleggs: |
|
|
Tja ... þetta með einkalífið.
Þegar það fer að hafa áhrif á vinnuna, þá verður yfirmaðurinn að grípa í taumana.
Ef þú mættir til vinnu í þannig ástandi eftir djamm að þú værir líklegur til þess að gera mistök og valda fyrirtækinu skaða, þá yrðir þú sendur heim.
Segjum að áfengi komi málinu ekki við, þú lentir í rifrildi við nákominn, ferðataskan er í aftursætinu, grátbólginn og rytjulegur mættir á mánudegi.
Að öllum líkindum aftur sendur heim. Ef ekki, þá er starfið sem um er rætt kannski ekki þannig að hægt sé að valda fyrirtækinu tjóni með mistökum.
Þessar 90 min sem Terry "stimplar" sig inn til þess að spila eru mikilvægar, bæði fyrir klúbbinn, aðra leikmenn og ekki síst fylgismenn hans.
Ef gerð eru mistök inni á vellinum á þessum 90 min sem rekja má til vandræða í einkalífi leikmanns finnst mér sjálfsagt að reyna að koma honum til hjálpar. Af sjálfsögðu erum við ekki að tala um ein mistök og út úr liði, þá gætum við aldrei stillt upp sama liði tvisvar. Terry er því miður búinn að gera sig sekann um slakan varnarleik í of mörgum leikjum í röð.
Við eigum Alex, Ricky og Ivan.
Af hverju ekki að nota breiddina, Terry fær kannski "bak í takið" eða eitthvað bráðum, hver veit. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
Arshavin
Skráður þann: 22 Jún 2008 Innlegg: 83
|
Innlegg: Þri Mar 02, 2010 20:23 Efni innleggs: |
|
|
Er búinn að vera í 20 mínútur að reyna tjá mig um þetta en enda alltaf á því að stroka út pistilinn sem er kominn!!
Held bara að enska pressan geri alltof mikið útúr þessu. Þetta snýst um mann sem svaf hjá kærustu "besta" vinar síns. Spurning hvort að Terry þarf ekki bara að biðjast afsökunar við Bridge. Þó svo að hann myndi ekkert endilega taka því þá myndi samt þungu fargi létt af Terry því það er ekkert "léttara" að biðjast afsökunar eins og að taka einni.
Finnst líka skrýtið að Bridge sé svona rosalega "sár" því hann var löngu skilin við konuna. Þó svo að þetta hafi gerst áður að en þau hættu saman. Bridge er heldur ekkert að hjálpa til með að draga sig úr landsliðinu því hann er án efa næstbesti bakvörður Englands á eftir rugludallinum A.Cole. Með því að draga sig úr hópnum veikti hann án efa liðið.
Maður sá alveg svipinn á Terry þegar hann rétti Bridge höndina, hann átti ekkert auðvelt með það en hann gerði samt sem áður. En píslarvotturinn ákvað að taka ekki í hana, veit ekki...
ringlar allt saman í hausnum á mér hver á að gera hvað ......
en er sammála Cardinal, við þjöppum Stoke saman næstu helgi ... _________________ Chelsea Er Lífstíll |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
helgi2385
Skráður þann: 20 Jan 2007 Innlegg: 195 Staðsetning: Þingeyri
|
Innlegg: Þri Mar 02, 2010 20:32 Efni innleggs: |
|
|
Terry á skilið einn séns á móti Stoke. segjum sem svo að Carlo ræði við menn og fái þá til að leggja meira á sig í næsta leik þá á Terry það ekki minna skilið en aðrir.
En afhverju hefur ekkert verið rætt um varnartilburði Mikel í fyrra marki Bellamy. Hann gerði nákvæmlega ekki neitt og setti Hilario í erfiða stöðu. Hann virðist ekki einu sinni reyna að loka á hann, hann hleypur bara með honum. _________________ Við vinnum þetta svo bara aftur og aftur og aftur og aftur og aftur!!! |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
Limlestin
Skráður þann: 24 Sep 2005 Innlegg: 307
|
Innlegg: Mið Mar 03, 2010 21:18 Efni innleggs: |
|
|
Maður líkir ekki svona mönnum við fábjána, eins og okkur, sem vinna venjulega vinnu....
Þessir menn þéna á einum degi það sem ég þéna á fimm árum..... það hlýtur að vera hægt að gera einhverjar kröfur á þessa skíthæla sem drulla á sig hvað eftir annað utan vallar og væla svo yfir því hvað pressan fer illa með þá.
Þessir menn eru svo ógeðslega veruleikafyrrtir vegna óþrjótandi peninga-álna og frægðar að þeir telja sig vera ósnertanlega.
Ég er ansi hræddur um að Bellamy hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að allir vissu hvaða mann Terry hefði að geyma og að það væri ekkert sem hefði gerst sem kæmi honum á óvart.
Skál.. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
helgi2385
Skráður þann: 20 Jan 2007 Innlegg: 195 Staðsetning: Þingeyri
|
Innlegg: Mið Mar 03, 2010 22:44 Efni innleggs: |
|
|
varðandi Bellamy, þá kemur þetta úr vertsu átt. Man ekki betur en að hann hafi ráðist á Riise með gólfkylfu. Terry er þó ekki geðsjúklingur. En þetta er allveg rétt að þessir atvinnumenn eru bólstraðir upp fyrir haus og er gjörsamlega veruleikafyrtir. Það sem ég meina er að menn verða að eiga fyrir því þegar þeir tjá sig.
Alls ekki að verja gjörðir terry´s eða cole _________________ Við vinnum þetta svo bara aftur og aftur og aftur og aftur og aftur!!! |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
Ballack00
Skráður þann: 30 Júl 2008 Innlegg: 137
|
Innlegg: Fim Mar 04, 2010 20:33 Efni innleggs: |
|
|
| Svo bætir það ekki upp að það vanti hálft liðið. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
|